Víðidalur,Skagafirði

Heimasíða hrossaræktandanna í Víðidal

Hrossarækt

Hrossarækt hefur verið stunduð í Víðidal í um 35 ár. Helst skal nefna hryssurnar Yrpu, Rauðku, Drottningu, Perlu og stóðhestinn Vin 980.
     Undan þessum hryssum og út af þeim hafa komið 1. verðlaunahryssur og landsmótssigurvegarar.
    Má þar nefna Eldingu, Bylgju, Lukku, Nótu, Vakningu Gnótt, Hendingu, Sóldögg, Mánadís, Þrumu og Sól, allt 1. verðlaunahryssur og svon landsmótssigurvegarann Hryðju. Formóðir þessara hryssna, er hryssan Jörp frá afa mínum Haraldi Stefánssyni sem bjó í Brautarholti í Skagafirði og var hryssan afmælisgjöf mín frá afa árið 1963, þá folald.
 
    Stóðhestar sem notaðir hafa verið síðustu árin, eru m.a. Rökkvi frá Hárlaugsstöðum, Þokki frá Kýrholti, Klettur frá Hvammi, Víðir frá Prestbakka, Ísak frá Margrétarhofi, Hvinur frá Hvoli,Tjörvi frá Sunnuhvoli, Askur frá Víðidal og nú í sumar var í hryssunum 3. vetra efnilegur foli undan Gleði frá Prestbakka og Rökkva frá Hárlaugsstöðum og ber hann nafnið Gustur.
     

Flettingar í dag: 4
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 7
Gestir í gær: 6
Samtals flettingar: 15241
Samtals gestir: 6141
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 21:18:42

Tenglar